Um okkur
Emar byggingavörur sækir nafn sitt í stofnandann Eggert Marinósson sem er lærður húsasmiður.
Emar byggingavörur ehf er ungt fyrirtæki og góður valkostur fyrir þá sem eru að byggja, breyta eða bæta. Emar er persónuleg heildverslun með fjölbreytt úrval af byggingavörum þar sem allir geta keypt gæðavöru á hagstæðu verði. Emar hefur sérstöðu að því leyti að ekki eru um eiginlega verslunun að ræða.
Emar byggingavörur leggja mikla áherslu á gæði í vöruframboði og geta boðið hagstæð verð þar sem enginn rekstur er á hefðbundinni verslun. Þeir sem eru í framkvæmdahugleiðingum geta nú keypt fjölbreyttar byggingavörur á heildsöluverði en einnig er hægt að panta tilbúin heilsárshús, gestahús, garðhús og sólstofur, sniðin að þörfum viðskiptavina.
Það er von mín að heimasíðan Emar.is hjálpi þér við leitina að þeirri vöru sem þú ert á höttunum eftir og opni jafnvel augu þín fyrir skemmtilegum nýjungum. Á síðunni er að finna flestar upplýsingar um þær vörur og þjónustu sem er í boði. Tækniupplýsingar um hurðir og glugga liggja e.t.v. ekki á lausu sökum höfundaréttar og því þarf að spyrja sérstaklega um þær.
EF ÞÚ SÉRÐ ÞAÐ EKKI Á SÍÐUNNI…….SPURÐU ÞÁ UM ÞAÐ!
Kær kveðja
Eggert Marinósson.